Skólabyrjun haustið 2024

Senn líður sumar undir lok og skólabyrjun nálgast óðfluga. Nýtt skólaár er handan við hornið og styttist í að skólinn iði aftur af lífi. Örugglega eru margir orðnir spenntir að mæta aftur í skólann, hitta kennara og skólafélaga. 

Skólasetning Fellaskóla fer fram fimmtudaginn 22. ágúst klukkan 13:00

Gert er ráð fyrir stuttri samkomu í sal en síðan munu nemendur hitta umsjónarkennara í sínum heimastofum.