Barnaheill - Save the Children á Íslandi vilja hvetja alla til að taka þátt í símalausum sunnudegi þann 30, október næstkomandi. Áskorunin felst í því að leggja frá sér símann og önnur snjalltæki í 12 klukkustundir, frá kl. 9:00 - 21:00. Yfirskrift átaksins er ,,Upplifum ævintýrin saman" og er markmiðið að vekja foreldra og annað fullorðið fólk til umhugsunar um áhrif snjalltækja á samveru og nánd innan fjölskyldna.
Snjallsímar og önnur snjalltæki eru skemmtileg og gagnleg tæki sem hafa umbylt því hvernig við eigum í samskiptum, nálgumst upplýsingar og vejum tíma okkar. Í mörgum tilvikum eru a´hrif tækninnar jákvæð og sniðug en einnig hefur verið bent á skuggahliðar hennar. Óhófleg notkun á snjalltækjum getur meðal annars haft áhrif á samskipti innan fjölskyldunnar - samskiptin og nándin minnka því það er eitthvað sem stelur athyglinni.
Símalaus sunnudagur er nú haldinn í fjórða sinn og hefur dagurinn fengið töluverð viðbrögð undanfarin ár. Barnaheill hvetja skóla til þess að vekja athygli á deginum og þannig efla samveru foreldra og barna á þessum degi.
Hægt er að skrá sig til leiks á www.simalaus.is og taka áskorun Barnaheilla. Allir þátttakendur eiga möguleika á að vinna fjölbreytta og fjölskylduvæna útdráttarvinninga og fá auk þess nokkur góð ráð send í tölvupósti laugardaginn 29. október.