Aðalfundur Foreldrafélags Fellaskóla

Foreldrafélag Fellaskóla boðar til aðalfundar þriðjudaginn 12. nóvember kl. 20:00 í húsnæði skólans. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar, ársreikningur lagður fram og kosning í nýja stjórn.

Umræður um komandi verkefni félagsins. Foreldrar og forráðamenn nemenda í Fellaskóla eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um starf félagsins og framtíðarsýn þess.